

Reiki heilunarnámskeið
Elsku fallega ljósvera,
Langar þig að læra að heila orkustöðvarnar þínar, efla sjálfstraustið, vera í nærandi félagsskap og umhverfi yfir heila helgi?
Ég ætla að vera með dásamlegt námskeið í Reiki heilun (1. og 2. stig) þar sem þú getur byggt upp og þróað þína andlegu uppbyggingu.
Einstakt tækifæri til að læra betur inn á orkustöðvarnar og hvernig við getum heilað þær, hvernig við getum lært að nýta jákvæða orku til að heila okkur sjálf, umhverfið okkar og hvernig við getum eflt sjálfstraustið til muna.
Við munum einnig fara í hugleiðslur sem næra líkama og sál.
Þráir þú að komast úr ys og þys hversdagsins, rækta sjálfan þig í dásamlegum félagsskap og umkringd fallegri og mjúkri orku, þá er þetta námskeið sniðið fyrir þig.
Ef þetta námskeið talar til þín að þá tek ég hjartanlega vel á móti þér.
Innifalið í námskeiðsgjöldum sem eru 50.000.-
- Námskeið - Reiki (1. og 2. stig)
- Andleg uppbygging
- Öll námskeiðsgögn, viðurkenningarskjal og lítil gjöf til þín
Leiðbeinandi:
Svava Bjarnadóttir - Reikimeistari
Andlegur einkaþjálfari og þjálfi í Jákvæðri sálfræði
Staðsetning: Sauðárkrókur
Skráning og allar helstu upplýsingar veitir Svava í gegnum tölvupóst svava@tvaerstjornur.is
Ef þú vilt vera með skaltu bara senda mér tölvupóst
Hlakka til að heyra frá þér!
Hjartans kveðja
Svava

Einar Axel Schiöth
heilsu- og hjálparmiðill.
Einar Axel Schiöth verður með einkatíma föstudaginn 11. september. Hver tími er um 50 mínútur og kostar 11.500 kr fyrir félagsmenn en 12.500 fyrir aðra.
Frekari upplýsingar um Einar Axel er hægt að nálagst hér:
Skráning á Noona og í síma 868 5670 á fimmtudögum frá kl 17:00 til 19:00.
%20copy.jpg)

Sif Svavarsdóttir
spámiðill, heilari og
bowentæknir
Sif Svavarsdóttir verður með einkatíma helgina 2. - 4. október. Sif bíður upp á leiðsagnarlestur með tarot- og englaspilum. Hver tími er um 30 mínútur. Tíminn kostar 11.000 kr fyrir félagsmenn en 12.000 kr fyrir aðra.
Frekari upplýsingar um Sif er hægt að nálagst hér:
Skráning á Noona og í síma 868 5670 á fimmtudögum frá kl 17:00 til 19:00.
Kyrrðarhugleiðsla
Boðið er upp á kyrrðarhugleiðslu hjá félaginu að Skagfirðingabraut 9a, fimmtudaginn 8. október frá kl 17:00 til 19:00. Hugleiðslan er öllum opin.
Kyrrðarhugleiðsla snýst um að róa hugann, ná djúpri slökun og finna innri ró með því að beita öndun, núvitund og kyrrð. Hún hjálpar við að minka streitu og bæta einbeitingu í amstri dagsins.

