

fim., 15. jan.
|Sauðárkrókur
Opið hús
Inga Katrín D Magnúsdóttir, þjóðfræðingur heldur stutta tölu um álagabletti og álfabyggðir.
Tími og staðsetning
15. jan. 2026, 17:00 – 19:00
Sauðárkrókur, Skagfirðingabraut 9a, 550 Sauðárkrókur, Iceland
Um viðburðinn
Við Skagfirðingar erum rík af alls kyns sögnum og þjóðsögum um huldar verur. Fimmtudaginn 15. janúar næstkomandi ætlar Inga Katrín D. Magnúsdóttir, þjóðfræðingur og verkefnastjóri hjá Byggðasafni Skagfirðinga, að halda stutta tölu um álagabletti og álfabyggðir, umgengnisreglur og boðskap þeirra. Erindið byggir á smáriti sem byggðasafnið gaf út árið 2016, en í því er fjallað um margskonar staði þar sem viðhafa þarf ákveðna varúð í umgengni og háttarlagi, annars gæti voðinn verið vís. Inga hefur lengi haft áhuga á þeim mannlegu hugarheimum sem birtast í sögnum og loða við landslagið, ekki síður en þeim huldu verum sem sagðar eru vera allt um kring. Umræður að fyrirlestri loknum.
